Hafa það gott í útlöndum...

Það mætti ætla að bæturnar frá TR séu góðar, þar sem bótaþegar geta dvalist langdvölum í útlöndum.  Ekki gæti ég það enda þarf ég að vinna mér inn fyrir tekjum.

Bótaþegar verða núna að haga seglum eftir vindi...og koma sér heim og taka þátt í kreppunni.


mbl.is Bæturnar brenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rebekka

Eeeh, ég held að fólkið sé nú ekki í neinu súperfríi þarna, heldur einfaldlega búi í útlöndum.  Líklegast í eigin húsi en ekki á hóteli..

Rebekka, 4.10.2008 kl. 09:07

2 identicon

Nei við erum sko ekki í súperfríi hér Haffi.. Heldur erum við fólk sem gátum ekki lifað á okkar bótum á Íslandi þó við fáum greitt þaðan enda búin að vinna allt okkar líf fyrir okkar rétti.. Eins og þú átt eftir að komast að síðar þegar þinn aldur kemur... Þú ert þó heppin að halda heilsu og vona ég að þú gerir það sem lengst svo þú fáir ekki að upplifa bætur hjá TR.

Við erum líka skattgreiðendur á Íslandi þó við búum ekki þar..

Við erum venjulegt fólk sem höfum enga aðra úrlausn okkar mála því við getum ekki aflað okkur tekna á annan hátt .. og erum því miður á bótur frá TR.. Sem allir enda á ef aldrur endist til... Eða ef heilsan bregst..

 Kveðja frá Danmörku Dóra öryrki

Dóra (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 09:45

3 identicon

Þetta er svona um það bil heimskulegasta bloggfærsla sem ég hef nokkur tímann lesið! 

Þetta fólk er ekki í fríi erlendis heldur býr þar. Flest okkar hafa engan veginn efni á að flytja til Íslands þar sem bæturnar myndu varla duga fyri húsaleigu og mat.  Ég efast um að þú gætir lifað á 120.000 kr á mánuði og þó er þú ekki öryrki.  Því fylgir mikill auka kostnaður að vera sjúklingur. Lyf, læknakostnaður, sjúkraþjálfun, samgöngur (mörg okkar eru jú ekki beint fær um að ganga eða hjóla), etc.

Ég væri persónulega alveg til í að búa á Íslandi þar sem nánast allir mínir ættingjar og vinir eru.  En þá þyrfti ég að hafa efni á að leigja mér íbúð, kaupa mat, tryggingar, skólabækur, föt og allt þetta venjulega.  Þar sem ég er fædd með sjaldgæfan vöðvasjúkdóm sem meðal annars fylgir mikið kraftleysi og hjartavandamál þá þyrfti ég einning að hafa efni á öllum þeim lyfjum sem ég þarf að taka, sjúkraþjálfun, tíðum læknaheimsóknum, bíl, bensíni (ég hef ekki nógu mikinn kraft til að geta tekið strætó) og svo mætti áfram telja. Endilega útskýrðu fyrir mér hvernig 120.000 krónur eiga að duga í það.

Í stað þess neyðist ég til að búa inn á mömmu og pabba eins og staðan er í dag.

Kveðja,

22 ára öryrki með ekkert val

Salóme (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband