15.7.2008 | 19:57
Bifreiðarnar NL306 og ML018 ennþá á nöglum
Fór í smá bæjarferð eftir vinnu í dag og var ekki búinn að vera lengi í bænum fyrr en ég heyrði skrölt í nablabílum. Það er greinilegt að það eru ekki bara taggarar sem sýna andfélagslega hegðun eða í það minnsta 100% virðingaleysi gagnvart samborgurum sínum.
En þar sem ég var í miðbæ Reykjavíkur, þá voru engar lögreglumenn sjáanlegir þar, það svæði er svona eins og vilta vestrið var í denn, engin lög þar í gildi.
Gef ykkur hérna mynd af bílunum, til skemmtunar og einu taggi. Kannski veit lögreglan hver taggarin er.
![]() |
Of drukkinn til að blása í mæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ótrúlegt að enn skuli vera bílar á nagladekkjum á götum reykjavíkur sekta þá.
Skattborgari, 15.7.2008 kl. 21:34
Vá hvað ég er kominn með mikið leið á þessu endalausa nöldri hjá þér yfir öllum fréttum. Afhverju ertu að fara út úr húsi eiginlega ef allir eru svona ómöguleigir ??
Kveðja Frank
Frank (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 23:28
Frank þetta greinilega snertir þínar taugar, bendi þér á að þú þarft ekkert að sækja í nöldrið í mér með því að lesa bloggið. En bendi þér jafnframt á að breytingarnar gerast ekki nema að benda á þær. Allar breytingar kallast því nöldur af þeim sem vilja óbreytt ástand.
Haffi, 16.7.2008 kl. 07:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.