15.11.2007 | 22:04
X-listinn og skattar
Ekki byrjar þetta vel hjá Degi og hans fylgifé. Borgarbúar, sem eiga að njóta mesta hagræðis af nábýli og þéttleika byggðar, fá hæstu leyfilega skatta í formi útsvars. Meðan önnur nágrannasveitafélög skattpína ekki íbúa sína eins illa og stjórn Reykjavíkurborgar.
Þetta er greinilega forsmekkurinn á því sem koma skal. Legg því til að Reykjavíkurborg verði innlimuð í Skorradalshrepp sem er bara með 11.24% útsvar.
Vona bara að það verði ekki of mildur vetur, því þá mun Orkuveitan hækka gjöld á heitu vatni, eins og hún gerði undir stjórn Hobbitans Alfreðs Þorsteinssonar.
Borgarbúar, búið ykkur undir skattpíningu næstu árin..! ´
![]() |
Óbreytt útsvar og fasteignagjöld í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.