26.8.2008 | 22:51
Blessuð börnin
Miðað við hvað batteríið í minni tölvu, missir hleðsluna fljótt, þá held ég að börnin verði aðalega í því að snúa vélinni í gang og hafa því minni tíma til að pikka á hana
![]() |
Öll börn á Niue fá fartölvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2008 | 22:47
Nauðsynlegt að leggja niður Framsóknarflokkinn..
..og senda Guðna á Þjóðminjasafnið sem sýnishorn um síðasta glaumgosann frá Framsókn. Aðra Framsóknarmenn ættu svo að senda á söfn/félagsheimili um allt land, vonandi dugar einn Framsóknarmaður í hverjum hreppi landsins.
Guðni er greinilega búinn að gleyma því að flokksmenn hans gáfu bankana á sínum tíma og því hefur hann ekkert um málið að segja. Kannski segir hann þetta til að sjarmera fyrir sparisjóðsmönnum sem kenna sig við Mýrasýslu og eru meðlimir í Framsóknarflokknum
Hvernig ætlar hann svo að skipta þessum bönkum og fjármálastofnunum? Svo annað sem Guðni ætti nú að vita að þeir bankar sem fóru í útrás, eru þeir einu sem reknir eru með hagnaði þessa dagana. Þeir sem sátu heima, eru reknir með tapi.
![]() |
Nauðsynlegt að skipta upp íslenskum bönkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2008 | 22:40
Gengið á rétt mótmælenda
Það segir sig nokkuð sjálft að skrifa mótmælin á gangstétt, þýðir að það er gengið á kröfunni daglega, ætli hún hafi svo ekki verið tröðkuð niður með tímanum.
Annars undraðist maður þau ummæli að þarna sé verið að ganga á rétt mótmælenda til að mótmæla. Hafa mótmælendur bara réttindi hér á landi en engar skyldur?
![]() |
Mótmæli þurrkuð út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.8.2008 | 19:13
Ég mótmæli komu hans til Íslands
Fólk má kalla mig rasista útaf skoðun minni en ég tel að hann komi ekki á réttum forsendum til landsins. Hann er ekki efni í hælisleitanda. Það eru engar fréttir um dráp á fólki frá heimalandi hans, amk á mbl.is. Það ber því að synja ósk hans um hæli hér á landi og það strax. Það sama á við eiginkonu hans. Ósk þeirra um hæli hér á landi lyktar að leit að efnahagslegu öryggi.
Vilji hann vera á Íslandi sem góður þegn og skattgreiðandi, þá er hann velkominn til landsins að mínu mati, ásamt eiginkonu sinni. Þá ætti það að fara gegnum sömu afgreiðslu og aðrir útlendingar þurfa að þola.
Ísland hefur reyndar gert samning við önnur lönd í Evrópu að fólk fyrir utan Evrópu eigi erfiðara með að setjast að í Evrópu/Íslandi. Það er stefna sem stjórnvöld hafa tekið og landinn þarf að sætta sig við.
![]() |
Ramses kemur í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2008 | 19:05
Atvinnubílstjóri þarna á ferð...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2008 | 18:57
Hvað er Íslendingur?
Var að velta því fyrir mér hvernig er skilgreiningin á fyrirbærinu "Íslendingur"?
Er það sá sem er með kennitölu? Er það sá sem er með Íslenskt vegabréf? Er það sá sem er fæddur hér á landi? Er það sá sem talar Íslensku? Sá sem býr á Íslandi?
Gat ekki fundið neitt um þetta á netinu. Kannski mbl.is geti svarað þessu.
![]() |
Íslendingar voru 319 þúsund um mitt ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.8.2008 | 18:49
Rétta eðli Rússa
Þarna kemur fram hin eina og sanna utanríkisstefna Rússa. Björninn er vaknaður og nú á síðsumri er strax komið frost. Hvernig stendur á því að Rússar komast upp með að segja Islendingum hvað landið á að gera? Þannig framkoma er ekkert annað en móðgun í garð sjálfstæði þjóðarinnar. Sendiherra Rússa ætti reyndar að biðja þjóðina afsökunar á kröfu sinni.
En hvar er núna fyrrum boðberi friðar, hann Ólafur Ragnar? Hann er þögull að vanda. Það er kominn tími til að þjóðin fái sér vopnuð skip og alvöru loftvarnir til mótvægis við aðgerðir Rússa.
![]() |
Afstaða til Georgíu mun breytast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2008 | 07:40
Slæmar fréttir
Slæmt er ef ekki tekst að klára þetta verkefni á tilsettum tíma, þar sem þetta svæði er það viðkvæmt að öll miðborgin þarf að blæða fyrir seinkun á verkefninu.
Það er óskandi að Nýsir hf, reynir að fá fjármagn frá sem flestum aðilum.
![]() |
Viðskiptamiðstöð slegið á frest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)