9.10.2008 | 22:27
Vilhjálmur og ég eigum ekki samleið..
..nema núna er ég algerlega sammála honum. Það er svo sannarlega kominn tími til að fá hjálp frá sjóðnum, með öllum þeim hömlum sem því fylgja. Þar liggur kannski einmitt hnífurinn í kúnni. Getur verið að stjórnmálamenn hér á landi þola ekki þær hömlur sem settur eru á þá af hálfu sjóðsins.
Ego-greddan í stjórnmálamönnunum eru að rústa almenning hér á landi...burt með þá og Bubba á þing. ;)
![]() |
Vill fá aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 19:56
Ráðherrar drullar á sig
Djöf hafa þessir ráðamenn þjóðarinnar drullað uppá bak undanfarið. Þessir menn taka kátir við öllum skattgreiðslum frá bönkunum en geta svo ekki varið þá þegar sótt er að þeim með ómaklegum hætti. Að hlusta á fjármálaráðherra í Flugstöðinni fékk mann til að æla. Ætla rétt að vona að maðurinn hafi fengið flug bara aðra leiðina.
Þeir sem bera ábyrgð eru þeir sem sitja á þingi, ásamt ráðherrum Það eru þeir sem kusu þetta yfir almenning.
![]() |
Sendiherra kallaður á fund |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 18:57
Björgvin ljúgari...
Er ekkert að marka orð ráðherrans? Ef hann getur ekki staðið við orð sín til starfsmanna Landsbankans er þá hægt að taka mark á öðrum orðum hans? -bara spyr!
Það er vonandi að Sigurður G. lögfræðingur batni eftir veikindin sín og hann fari að skoða þessi neyðarlög sem sett voru í svefngalsa á þingi. Þessi lög eru hrein og klár ólög, þar sem eignir fólks eru teknar eignarnámi.
![]() |
Óvissa með uppsagnarfrest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 17:41
Kallið sendiherrann heim
Bretar sýna Íslendingum virkilega fjandsamlega og óvinveitta hegðun og því væri réttast að kalla sendiherrann heim til skrafs og ráðagerða. Fjandsamlega framkoma þeirra hefur kostað almennig hundruðu milljóna tap.
Almenningur ætti kannski að fara í mál við Brown og Breska ríkið á þeim forsendum. Best væri auðvita að rétta yfir honum/þjóðinni hér á Íslandi. Amk rétta Bretar yfir Íslenskum ríkisborgurum eins og þeir væru þeirra þegnar sbr. Hannes Hómsteinn vs. Jón bófi.
Legg til að mótmæli eigi sér stað fyrir framan Breska sendiráðið á næstu dögum. Bubbi getur kannski skipulagt þau.
![]() |
Brown: Viðhorf íslenskra stjórnvalda óviðunandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.10.2008 | 07:15
Almenningur krefst svara
Þarna skitu stjórnmálmenn á sig, haldandi fréttamannafundi þar sem ekkert nema blaður kemur fram. Almenningur hefur tapað hundruðu milljóna króna á þessu aðgerðaleysi og blaðri stjórnmálamanna.
Seðlabankinn er jafnframt ekki saklaus í þessu máli.
![]() |
FME yfirtekur Kaupþing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.10.2008 | 07:12
Sökin liggur hjá stjórnmálamönnum
Þegar bankarnir voru einkavæddir hvöttu sitjandi stjórnmálamenn (þáverandi og núverandi) almenning til að kaupa hlutabréf í bönkunum, sem og tugþusundir gerðu.
Það er svo stjórnmálamönnum að kenna að setja ekki nægilegt regluverk kringum fjármálastarfsemi landsins og að tryggja bakland þess.
Það er svo núna stjórnmálamönnum að kenna að almenningur tapar núna öllu sínu sparifé. Ég mun krefja svara og bóta frá valdhöfum. Ég amk hverja ég mun ekki kjósa við næstu kosningar.
![]() |
Milljarðar í súginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)