30.10.2008 | 22:35
Ritskoðun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2008 | 21:56
ups...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2008 | 21:06
Veðrið er í takt við þjóðarandann
Veturinn leggst með miklum þunga á landann þessa stundina og er það einfaldlega boðberi þess hvernig fólk mun þurfa hafa fyrir sínu. Næstu 6 mánuði mun verða hryna gjaldþrota og greiðsluerfileika hjá fólki. Því miður getur fólk ekki hækkað skatta eins og ríkið fyrir sínum útgjöldum. Fólk getur reyndar beðið um launahækkun en lítil von er til þess að það gangi eftir þegar 10þúsund manns verða atvinnulaus.
Svo hefur þjóðin algerlega siðferðislega blinda menn við stjórn. Menn sem taka vinskap og flokkspólitík framfyrir hagsmuni þjóðarinnar. Þetta boðar ekki gott.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2008 | 18:16
Fyrsti vetrardagur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2008 | 06:51
Íslenska heilkennið..
*Gömul skilgreining endurhönnuð*
Það má alveg hlæja að þessu, vek alveg sértakalega athygli á íslenska heilkenninu....
SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
*ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar*
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, ?Kúmann?, sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki
ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 22:23
Saga um Björgvin...
NAGLASAGA
Það var einu sinni lítill drengur sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið.
Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og nöglunum fjölgaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum frá því sem lagði nú til að drengurinn drægi út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.
Faðirinn leiddi son sinn að grindverkinu og sagði: Þú hefur staðið þig með prýði en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör. Faðirinn hélt áfram: Vinir þínir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér. Sýndu hversu mikils þú metur þá.
Drengurinn tók þegar ráðleggingum föður síns og sendi til allra vina sinna eftirfarandi orðsendingu: Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður. Viltu fyrirgefa mér ef ég hef skilið eftir göt í grindverkinu þínu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 19:13
Кауптинг банком
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2008 | 20:06
Krepputal..
Er hægt að kvarta hér á landi? Sjá texta
http://cafesigrun.com/2008/10/16/sister-sigrunhvert-var-vandamalidh-aftur/#comment-18689
Eins og fram hefur komið höfum við verið að styrkja ugandískan námsmann sem óvænt varð á vegi okkar fyrir rúmu ári síðan þar í landi, til vegs og virðingar þ.e. hann er í námi sem við greiðum fyrir. Hann sækir nám í virtasta snyrtiskóla Uganda (alveg bannað að hlægja) og gengur vel. Hann var búinn að lofa að senda mér einkunnirnar sínar sem hann og gerði. Góður árangur er nefnilega lykillinn að því að hann fái áfram styrk. Eins og hann vissi. Nú er frí í skólanum og hann byrjar aftur 10. nóvember.
Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að reyna að útskýra fyrir honum hvernig gangur mála væri hér á landi...ég stórefa að fréttir berist alla leið til hans þarna í Entebbe. Ég var að velta því fyrir mér hvernig ég gæti útskýrt þetta fyrir honum. Ef ég stæði augliti til auglitis við hann ímynda ég mér að samtalið færi svona:
* (Ég) Hæ E.
Hæ systir (er alltaf kölluð Sister Sigrun eins og þið munið).
*Heyrðu það er úr vöndu að ráða...íslenska þjóðin er orðin gjaldþrota!
Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra systir kær. Eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís?
*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og kindur og mjólk til í nægu magni.
Hvað segirðu, þið eigið þá mat, það er gott. En leiðinlegt að heyra að þið eigið ekki skjól eða þak yfir höfuðið!
*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir, það eru fáir heimilislausir á Íslandi.
En hvað segirðu, eru þá allir veikir (sérstaklega þeir eldri og yngri) og heilbrigðiskerfið lamað?
*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi.
Nú jæja systir, gott að heyra en leiðinlegt samt að menntuninni muni fara halloka og að ekki muni allir hafi tækifæri til að læra að lesa, sérstaklega ekki konur.
*Jú reyndar er 99% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður jafnt konur sem karlar.
Það er nú gott, þannig að það eina sem þið þurfið að passa er að lenda ekki í stríði við nágranna ykkar.
*Uuuu við erum reyndar ekki með her og erum nú friðsæl þjóð.
Ok en samt verst að þið komist ekki í hreint vatn.
*Jú við eigum reyndar besta vatn í heimi.
Nú en vegakerfið er þá eflaust ónýtt og fáir bílar á ferð..í Afríku ganga jú allir eða nota troðna strætóa, asna, reiðhjól o.fl...leiðinlegt ef að ekki einu sinni strætóarnir ganga.
*Uuu það er verið að ræða hvort almenningssamgöngur eigi að vera ókeypis og vegir eru malbikaðir og flestir eru á bílum, mótorhjólum og fallegum, skínandi reiðhjólum (gömul reiðhjól eru lúxusvara þarna um slóðir).
En það er verst ef þið eigið enga peninga til að gera ykkur glaðan dag, ef þjóðin er gjaldþrota.
*Flestir eiga reyndar sparnað á bókum þó margir hafi tapað honum síðustu daga, kannski erfitt að kaupa stærri sjónvörp og svoleiðis og utanlandsferðunum verður jafnvel að fækka.
Samt svakalegt ef atvinnuleysi er yfir 50-70% þannig að nánast ómögulegt sé að fá vinnu?
*Reyndar er atvinnuleysið um 2%......Íslendingar nenna bara ekki að vinna vinnuna sem útlendingarnir unnu...
Hmmm svo þið hafið húsnæði, mat, húsaskjól, heilsu, menntun, frið, hreint vatn, samgöngur (og bíla), peninga.....Sister Sigrun....hvert var vandamálið aftur?
Eftir að hafa lent í samræðum við ugandíska lærlinginn í huganum þá ákvað ég að vera ekki að íþyngja honum með ræfilslegum áhyggjum mínum af "gjaldþrota" eyríki. Ég sendi honum fyrir námsgjöldum næstu annar og kannski smá vasapening með. Hann þarf nefnilega að ganga í marga klukkutíma annars til að komast í skólann því hann hefur ekki efni á strætó, húsnæði, mat, bókum, skriffærum né neinu öðru. Systir hans E hefur hótað því að lemja hann ef hann stendur sig ekki vel (sagði hún mér sjálf) og ég vil ómögulega gera honum þetta erfiðara fyrir.
Ég er bara svakalega ánægð með að lærlingurinn fékk A í Make Up. Lægsta einkunnin var C- í efnafræði hárlenginga. Ég sagði honum líka að hann hefði staðið sig vel og þyrfti ekki að hafa áhyggjur af næstu önn. Sister Sigrun ætlar að sjá um málið þ.e. ef ég get þá sent peninga íslenskra terrorista til Uganda!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)